Verkleg kennsla er aldrei eingöngu fólgin í því að framkvæma verkefni heldur felur hún einnig í sér ígrundun, samskipti og skilning. Í ökukennslu þarf nemandinn stöðugt að tengja saman bóklega þekkingu, verklega færni og ákvarðanatöku í raunverulegum aðstæðum. Markmið kennslunnar er því ekki aðeins að nemendur læri að stjórna bifreið heldur einnig að þeir þrói með sér sjálfstæði, ábyrgð og hæfni til að lesa í aðstæður í umferðinni.
Í minni kennslu legg ég áherslu á að nemendur taki virkan þátt í náminu og fái tækifæri til að ræða eigin upplifun af akstrinum. Með umræðum, spurningum og ígrundun skapast oft dýpri skilningur á því hvers vegna ákveðnar reglur, vinnubrögð og viðhorf skipta máli í umferðinni. Slík nálgun tengist meðal annars hugmyndum John Dewey um nám í gegnum reynslu þar sem nemendur læra með þátttöku og virkri reynslu úr raunverulegum aðstæðum.
Í verklegri kennslu nýti ég leiðsagnarmat til að hjálpa nemendum að fylgjast með eigin framförum og þróa færni sína jafnt og þétt. Leiðsagnarmat felst í því að nemendur fá reglulega endurgjöf á meðan námsferlinu stendur þannig að þeir átti sig betur á eigin styrkleikum, því sem þarf að bæta og hvernig hægt sé að halda áfram að þróa aksturinn.
Ég legg áherslu á uppbyggilega endurgjöf þar sem markmiðið er að skapa öruggt námsumhverfi þar sem nemendur þora að gera mistök og læra af þeim. Í kennslunni nota ég meðal annars aðferðina „mjög gott – gæti verið betra – þar af leiðandi“ þar sem fyrst er farið yfir það sem gekk vel, síðan hvað mætti bæta og að lokum hvernig hægt sé að þróa aksturinn áfram. Með þessari nálgun verða mistök hluti af námsferlinu fremur en eitthvað sem nemendur þurfa að óttast.
MUSIC-módelið eftir Jones er kennslufræðilegt líkan sem leggur áherslu á að efla áhugahvöt og virkni nemenda í námi. Módelið byggir á fimm lykilþáttum: valdeflingu (eMpowerment), gagnsemi (Usefulness), árangri (Success), áhuga (Interest) og umhyggju (Caring). Markmið líkansins er að skapa námsumhverfi þar sem nemendur upplifa stuðning, tilgang með náminu og trú á eigin getu (Aleksandra Hamely Ósk Kojic, 2026d).
Í minni ökukennslu leitast ég við að nýta þessa þætti með því að skapa rólegt og styðjandi námsumhverfi þar sem nemendur geta spurt spurninga og gert mistök án þess að upplifa neikvæða gagnrýni. Ég tengi verkefni við raunverulegar aðstæður í umferðinni svo nemendur skilji tilgang þess sem þeir eru að læra og skipti verkefnum niður í hæfilega stór skref þannig að þeir upplifi árangur og framfarir jafnt og þétt. Með fjölbreyttum kennsluaðferðum, umræðum og kveikjum leitast ég jafnframt við að halda náminu lifandi og áhugaverðu fyrir nemendur.
Hvernig virkar MUSIC módelið í ökukennslu hjá mér?
eMpowerment (Valdefling): Þú færð að hafa áhrif á námið þitt og rödd þín heyrist.
Usefulness (Gagnsemi): Við tengjum æfingarnar alltaf við raunverulegt gagn í umferðinni.
Success (Árangur): Við setjum okkur hæfilega stór markmið svo þú upplifir stöðugt að þú sért að ná árangri.
Interest (Áhugi): Ég nota fjölbreyttar kennsluaðferðir og „kveikjur“ til að halda náminu lifandi.
Caring (Umhyggja): Ég legg áherslu á góð tengsl og að þér líði vel og sért óhætt að gera mistök hjá mér.
Ég legg áherslu á að nemendur fái að taka virkan þátt í náminu, skilji tilgang verkefna og sjái hvernig það sem þeir læra nýtist þeim í raunverulegum aðstæðum í umferðinni. Með fjölbreyttum kennsluaðferðum, kveikjum og verkefnum sem tengjast daglegum akstri leitast ég við að halda náminu lifandi og áhugaverðu. Jafnframt tel ég mikilvægt að skapa jákvætt og styðjandi námsumhverfi þar sem nemendur upplifa öryggi, stuðning og raunhæfan árangur í náminu.
Meginmarkmið ökunámsins er að nemendur öðlist þá hæfni og leikni sem þarf til að aka af öryggi og sýna ábyrgð og tillitssemi í umferðinni. Ég legg áherslu á að nemendur læri ekki aðeins tæknilega stjórnun bifreiðar heldur einnig hvernig ákvarðanir, viðhorf og samskipti hafa áhrif á öryggi allra vegfarenda.
Ökunámið er í raun upphaf að lengra námsferli þar sem reynsla og þjálfun móta einstaklinginn áfram sem ökumann. Talið er að það geti tekið allt að 5–7 ár að ná fullri færni í akstri og því skiptir miklu máli að byggja upp góðan grunn frá upphafi. Markmið mitt sem kennari er að hjálpa nemendum að þróast í örugga, meðvitaða og ábyrga þátttakendur í umferðinni.