Að byrja að læra á bíl er stórt og spennandi skref. Markmið námsins er ekki eingöngu að þú fáir ökuskírteinið í hendurnar heldur einnig að þú byggir upp þá færni, ábyrgð og umferðarvitund sem þarf til að verða öruggur þátttakandi í umferðinni. Akstur er nefnilega ekki bara tæknileg færni til að stjórna ökutæki heldur einnig félagslegt atferli þar sem samskipti, tillitssemi og ákvarðanataka skipta miklu máli.
Í kennslu minni legg ég áherslu á virkt nám þar sem nemendur taka þátt í eigin námsferli, spyrja spurninga, ígrunda eigin ákvarðanir og læra af reynslu sinni. Slík nálgun tengist meðal annars hugmyndum John Dewey um nám í gegnum reynslu og virka þátttöku nemenda í eigin námi. Markmiðið er að skapa námsumhverfi þar sem nemendur upplifa öryggi, stuðning og raunhæfan árangur í takt við hugmyndafræði MUSIC-módelsins.
Verklega námið er byggt upp í fimm þrepum þar sem farið er frá einföldum undirstöðuatriðum yfir í flóknari aðstæður. Við byrjum á að læra á stjórntæki bifreiðarinnar og aka af stað á rólegum stað áður en við færum okkur smám saman út í flóknari umferð, akstur á þjóðvegum og loks akstur við erfið skilyrði í ökugerði. Með þessari stigvaxandi uppbyggingu fá nemendur tækifæri til að þróa færni sína og sjálfstæði á eigin hraða.
Verklega kennslan og bóklega námið (Ö1, Ö2 og Ö3) verða fléttuð saman þannig að þú sjáir skýrt hvernig það sem þú lærir bóklega nýtist í raunverulegum aðstæðum í akstri. Ég legg áherslu á að nemendur skilji tilgang verkefna og geti tengt saman reglur, áhættumat og eigin reynslu í umferðinni.
Áfangarnir í náminu eru hæfilega stórir og þú færð reglulega endurgjöf á framvindu þína í gegnum leiðsagnarmat. Markmiðið er að þú getir áttað þig á eigin styrkleikum, því sem þarf að bæta og hvernig þú getur þróað færni þína áfram. Ég tel mikilvægt að nemendur upplifi framfarir jafnt og þétt og byggi þannig upp öryggi og trú á eigin getu.
Virkt nám snýst um að þú takir þátt, hugsir um það sem þú ert að gera og beitir þekkingunni í akstrinum. Ég hvet nemendur til að spyrja spurninga, ræða eigin upplifun og taka virkan þátt í kennslunni. Engar spurningar eru vitlausar og oft skapast besti lærdómurinn í gegnum umræður og ígrundun.
Að stjórna bíl fylgir mikil ábyrgð gagnvart sjálfum þér, farþegum þínum og öðrum vegfarendum. Í kennslunni legg ég áherslu á að nemendur þrói með sér jákvætt viðhorf til umferðaröryggis og geri sér grein fyrir þeim hættum sem fylgja umferðinni. Markmiðið er ekki eingöngu að læra að stjórna bifreið heldur einnig að læra að lesa í aðstæður og taka skynsamar ákvarðanir í akstri.
Umferðin gerir kröfur til okkar allra og góð samskipti skipta miklu máli. Þú munt meðal annars læra að taka sérstakt tillit til þeirra sem eru berskjaldaðri í umferðinni, svo sem gangandi vegfarenda, barna, hjólreiðafólks og fólks með fötlun. Ég legg áherslu á að nemendur skilji mikilvægi tillitssemi, þolinmæði og virðingar í samskiptum við aðra vegfarendur.
Ég mun stöðugt meta aksturinn þinn til að hjálpa þér að þróa færni þína áfram. Ég nota uppbyggilega aðferð þar sem við ræðum fyrst hvað gekk vel, síðan hvað mætti bæta og að lokum hvernig hægt sé að þróa aksturinn áfram. Með þessu fá nemendur tækifæri til að læra af mistökum sínum í öruggu námsumhverfi án óþarfa gagnrýni.
Mitt helsta hlutverk er að leiðbeina þér og styðja þig í gegnum námsferlið. Ég legg mig fram um að skapa jákvætt og hvetjandi andrúmsloft í bílnum þar sem nemendum finnst bæði þægilegt og áhugavert að læra. Ég tel að nemendur læri best þegar þeir upplifa stuðning, öryggi og raunhæfar áskoranir sem hjálpa þeim að byggja upp sjálfstæði og öryggi í akstri.
Að fá ökuskírteinið er stór áfangi en í raun aðeins byrjunin á ferðalaginu. Það tekur tíma og reynslu að þróast sem ökumaður og því er mikilvægt að byggja upp góðan grunn strax frá upphafi. Markmið mitt er að hjálpa nemendum að þróast í örugga, meðvitaða og ábyrga þátttakendur í umferðinni.